Nýjasta myndband Gus Gus við Thin Ice er komið til sýninga á netinu og má sjá það hér.  Thin Ice er önnur smáskífa hinnar rómuðu sjöundu breiðskífu sveitarinnar, “24/7″. Myndbandið var sýnt sérstökum velunnurum sveitarinnar á kósíkvöldi á Kaffibarnum seint í fyrra og voru undirtektir mjög hlýlegar.
Myndbandið var tekið upp í Fellahverfinu í Breiðholti og er leikstýrt af þeim Heimi Sverrissyni og Jóni Atla Helgasyni.  Þeir leikstýrðu
einnig myndbandi Gus Gus við Add This Song sem vakti hvarvetna stormandi lukku.     Meðal leikenda eru auk Gus Gus nemendur úr Fellaskóla og Breiðholtsbúar sem tóku fagnandi þátt eftir að hafa móttekið skriflega beiðni leiksstjóra.
Gus Gus fóru í velheppnaða tónleikaferð um Evrópu á haustmánuðum í fyrra en hafa verið undir feld síðustu mánuði.   Þremenningarnir ætla að láta ljós sitt skína á heimavelli sínum, Nasa við Austurvöll, 19. mars næstkomandi og munu koma fram ásamt ungliðunum í Retro Stefson og sænsku chillwave-sveitinni Air France.
24/7 hefur fengið góðar viðtökur hérlendis sem og erlendis.  Fyrstu vikurnar eftir útgáfuna tróndi á toppi íslenska sölulistanum og skorar 7.2 af 10 á heimasíðunni Metacritic.com sem telst nokkuð gott.

Nýjasta myndband Gus Gus við Thin Ice er komið til sýninga á netinu og má sjá það hér.  Thin Ice er önnur smáskífa hinnar rómuðu sjöundu breiðskífu sveitarinnar, “24/7″. Myndbandið var sýnt sérstökum velunnurum sveitarinnar á kósíkvöldi á Kaffibarnum seint í fyrra og voru undirtektir mjög hlýlegar.

Myndbandið var tekið upp í Fellahverfinu í Breiðholti og er leikstýrt af þeim Heimi Sverrissyni og Jóni Atla Helgasyni.  Þeir leikstýrðu einnig myndbandi Gus Gus við Add This Song sem vakti hvarvetna stormandi lukku.     Meðal leikenda eru auk Gus Gus nemendur úr Fellaskóla og Breiðholtsbúar sem tóku fagnandi þátt eftir að hafa móttekið skriflega beiðni leiksstjóra.

Gus Gus fóru í velheppnaða tónleikaferð um Evrópu á haustmánuðum í fyrra en hafa verið undir feld síðustu mánuði.   Þremenningarnir ætla að láta ljós sitt skína á heimavelli sínum, Nasa við Austurvöll, 19. mars næstkomandi og munu koma fram ásamt ungliðunum í Retro Stefson og sænsku chillwave-sveitinni Air France.

24/7 hefur fengið góðar viðtökur hérlendis sem og erlendis.  Fyrstu vikurnar eftir útgáfuna tróndi á toppi íslenska sölulistanum og skorar 7.2 af 10 á heimasíðunni Metacritic.com sem telst nokkuð gott.

Comments No Comments »

kria poster2

Kría Brekkan á Listasafni Íslands sunnudaginn 28. febrúar. Mæting kl 21.oo

Comments No Comments »

Orðið tónlist listasafn 25. feb.

Stilluppsteypa, Parabólur og mynd um Magnús Blöndal í Listasafni Íslands 25. febrúar. Mæting kl 20.00

Magnús Blöndal Jóhannsson (1925–2005)  stundaði nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hann fór til framhaldsnáms til hins virta Juilliard skóla í New York árið 1947 og dvaldi þar við tónsmíðanám til ársins 1952. Á fyrstu árum tónsmíðaferils síns samdi Magnús mestmegnis tónlist fyrir píanó og söng. Magnús Blöndal var leitandi og skapandi tónskáld og lagði kapp á að finna verkum sínum farveg í þeim stefnum og straumum sem nýjust voru um miðbik aldarinnar. Hann heillaðist af möguleikum raftónlistarinnar og sótti heim rafstúdíó víða um Evrópu; í Köln, Varsjá og París. Magnús Blöndal Jóhannsson varð strax oddviti nýrra strauma í íslenskri tónlist. Árið 1951 samdi hann fyrsta íslenska tólf-tóna verkið, Fjórar abstraksjónir fyrir píanó. Hann samdi líka fyrstu raf-tónsmíðina hér, Elektróníska stúdíu fyrir segulband, blásarakvintett og píanó árið 1960 og braut þannig blað í sögu tónsmíða á Íslandi. Verkið var frumflutt á tónleikum Musica Nova árið 1960. Sama ár samdi Magnús tónverkið Samstirni fyrir segulband, þar sem skeytt var saman náttúru- og rafhljóðum. Á níunda áratugnum dvaldi Magnús Blöndal aftur í Bandaríkjum við tónsmíðar, en stíll hans á þeim tíma var orðinn talsvert frábrugðin því sem hlustendur þekktu af fyrri verkum hans. Frá þessum tíma er eitt kunnasta verk hans, Adagio fyrir strengi, selestu og slagverk. Auk þessara brautryðjendaverka samdi Magnús fjölmörg sönglög sem sum hver eru orðin sígild og þjóðþekkt, til dæmis lagið Sveitin milli sanda.
Magnús Blöndal Jóhannsson var líka um skeið hljómsveitarstjóri Þjóðleikhússins og starfaði um árabil við Ríkisútvarpið.

VOLTAIC er einstök heimild um heimstónleikaferð Bjarkar sem hún fór í eftir að hafa sent frá sér 6. hljóðvers plötu sína,  Volta árið 2007.

Þeir sem spiluðum með Björk í Volta tónleikaferðinni voru Mark Bell (LFO), á tölvur og hljómborð og Damian Taylor, á hljómborð og forritun.  Jónas Sen, á hljómborð og celesta, Chris Corsano spilaði á trommur og slagverk og svo að lokum má ekki gleyma að nefna 10 íslenskar konur sem spila á málm-blásturshljóðfærin, “Wonderbrass”.   Voltaic er einstök upplifun á tónleikahlið Bjarkar  Útgáfa, sem hefur fengið frábæra dóma út um allan heim.

“…sjónrænt eru tónleikar Bjarkar tilkomumiklir einso og þeir eru tónlistarlega framsæknir.” The Guardian.

2 x DVD: Volta tónleikaferðin í París og Reykjavík & Volta myndbönd

2 x CD: Tónleikar í Olympia-hljóðverinu & endurhljóðblandanir

verð 8999 kr

Comments No Comments »

Mynd ElizaPie in the Sky er önnur sóló plata Elízu Newman fyrrum söngspíru Korössu/ Bellatrix . Platan inniheldur meðal annars hið gríðarlega vinsæla lag Ukulele song for you sem slóg í geng og lagið Hopeless case sem sömuleiðis hefur notið mikilla vinsælda.

Þetta er plata sem mun vaxa með hverju lagi sem rennur í gegn , hún er full af stuði , stemmingu,og gleði og mun hressa við hin argasta fýlupúka!

verð: 2499 kr.

Comments No Comments »

Mynd KarnevalDyra

Karneval dýranna (Saint-Saens) , dásamleg dýragarðsveröld, Gæsamamma (Ravel) og Lærisveinn galdrameistarans (Paul Dukas) verða ógleymanleg í fylgd með hinum einstaklega skemmtilega sögumanni Erni Árnasyni.

verð: 1999kr

Comments No Comments »

Mynd EinusinniEndurútgáfa tveggja geisladiska og bókar með efni sem venjan var að fara með fyrir börn. Efnið er úr þjóðfræðisafni Árnastofnunar og flutt af fólki alls staðar að af landinu.

Hér er að finna þulur, kvæði og vísur, allt frá bænum og fallegum vögguvísum til kveðskapar um Grýlu og hennar hyski ásamt öðrum barnafælum. Halldór Baldursson teiknaði myndirnar. Rósa Þorsteinsdóttir sá um útgáfuna.

Einu sinni átti gott  er bók + 2CD og kostar 4999 kr

Comments No Comments »

Mynd CARINOÁ þessum hljómdisk flytur Páll Eyjólfsson verk tvö af höfuðtónskáldum gítartónlistarinnar,  Francisco Tárrega og Heitor Villa-Lobos.

Tónlist þessara meistara er einkar heillandi og eftir áralanga samferð Páls með þessum verkum upplifum við sannfærandi og heillandi flutning.

verð 2499kr

Comments No Comments »

Mynd Haydn-smc13Skálholtskvartetinn hefur verið starfandi síðan 1996.  Sjö orð Krists á krossinum er gefin út í tilefni af 200 ára ártíð Joseph Haydn.  Þetta verk er á margan hátt einstakt.

Haydn var heittrúaður maður.  Þessi tónhverfa íhugun hans um síðustu orðum Krists á krossinum áttu eftir að veita honum andlega næringu út æfina.  Vonandi mun íhugun við hlustun verksins veita sambærilega upplifun um ókomna tíð.

verð 2499 kr.

Skálholtsskvartetinn: Joseph Haydn:
Sjö Orð Krists á Krossinum

Comments No Comments »

thorkellÍ tilefni af 70 ára afmæli Þorkells Sigurbjörnssonar, tónskálds, sendir Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur frá sér útgáfuna Þorkell, kórverk eftir tónskáldið, sem flest hver hafa verið samin fyrir kórinn sérstaklega.

Hér fer saman heillandi tónlist við einstakan og hrífandi flutning Hamrahlíðarkórsins.

verð 2499 kr.

Comments No Comments »